Okkar Sögur

Vetur - jornal

Höfundur

Teymið í Kerlingarfjöllum

Dags.

Feb 25, 2026

Lestími

3 mín lestur

Af Kjalvegi

Af ferðalaginu

Ferðin um hálendið er hluti af töfrum Kerlingarfjalla. Þögnin sem einkennir grýttar auðnir hálendisins er engu lík og hún fær ferðalanga til að staldra við og leggja við hlustir.

Stebbi er byrjaður að segja brandara áður en við erum einu sinni komin inn í bílinn „þú veist hvernig ég er, það gengur ekkert ef ég má ekki grínast".

Það er góð stemning í bílnum og áður en við erum komin út fyrir borgarmörkin er fólk farið að grínast með að syngja, lög eins og „road to nowhere” og „highway to hell”, Stebbi þekkir alla flytjendur og hljómsveitir oger greinilega með vegaþematónlistina á hreinu.

Inn á milli segir hann okkur frá færð í ferðunum sem hann fór helgina áður, mikið um ís og krapa, svell úr Kórnum og inn í Kerlingarfjöll. Stebbi á í samskiptum við aðra bílstjóra í talstöð á leiðinni og veit af öllu sem er í gangi, hver er að sækja hvern, hvar þeir eru staddir núna og hversu margir eru að fara í fjöllin í dag.

Sex ferðir á helgi, og sirka fjórar helgar í mánuði, níu mánuðir... Þá eru þetta eitthvað rúmlega 200 ferðir sem ég er búin að keyra hérna fram og til baka.”

Stefán er öku- og fjallaleiðsögumaður og hefur verið að keyra gesti og starfsfólk í Kerlingarfjöll á veturna frá því að starfsemi nýja hótelsins hófst. Hálendismiðstöðin í Kerlingarfjöllum er á miðhálendi Íslands og liggurleiðin um Kjalveg, sem er einungis fær sérútbúnum fjallajeppum á veturna sem ekið er af fagfólki eins og Stefáni. Kjölur er í 600-700 metra hæð yfir sjávarmáli og að miklu leyti berar melöldur, sandar og hraun. Þarer allra veðra von og geta aðstæður breyst hratt og mikilvægt að ökumenn séu vanir slíkum kringumstæðum.

„Ég byrjaði á þessu fjallabrölti ‘95 þegar ég byrjaði í björgunarsveit... sem varð svo til þess að ég fór að gæda '97 og var í einhver 20 ár í þessu í aukavinnu og er búinn að vera í þessu núna í fullu starfi í níu ár. Mér líðurbest á fjöllum, þegar ég er kominn út af þjóðveginum og er úti í náttúrunni. Þegar ég byrjaði í hjálparsveitinni á sínum tíma þá byrjaði ég að keyra fyrir hjálparsveitina, sem varð svo til þess að ég náttúrulega fór ogkeypti mér minn eigin breytta jeppa. Og svo lærir maður af þeim sem maður er að ferðast með, en maður lærir mest af því þegar maður gerir einhverja gloríu.”

Ferðalagið

Journal - vetrarferð

Ferðalagið